Tilkynning um framboð í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík
8.2.2009 | 17:27
Ásta Möller var fyrst kjörin á Alþingi í alþingiskosningum 1999, var varaþingmaður frá 2003 til 2005. Í kosningunum vorið 2007 varð hún 7. þingmaður í Reykjavíkurkjördæmi norður. Í upphafi þessa kjörtímabils var hún kjörin formaður heilbrigðisnefndar Alþingis og formaður Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins. Auk þess var hún kjörin í framkvæmdastjórn Alþjóðaþingmannasambandsins í apríl á síðasta ári. Þá á hún sæti í fjárlaganefnd.
Í störfum sínum hefur Ásta Möller lagt sérstaklega áherslu á heilbrigðismál, málefni aldraðra og önnur velferðarmál fjölskyldunnar, auk lífeyrismála og málefna launamanna.
Ásta hefur gengt fjölmörgum forystustörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún situr í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins og er ritari þingflokks sjálfstæðismanna. Ásta var formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna 2005-2007 og sat í stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík 2003-2006. Þá var hún formaður heilbrigðis-og trygginganefndar Sjálfstæðisflokksins um árabil.
Ásta Möller hefur lokið BSc prófi í hjúkrunarfræði og meistaraprófi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað við hjúkrun, stjórnun og kennslu í íslenskri heilbrigðisþjónustu og gegndi formennsku í fag- og stéttarfélögum hjúkrunarfræðinga frá 1989-1999.
Nánari upplýsingar er að finna á veffanginu http://www.astamoller.is/ og á bloggsíðunni http://www.astamoller.blog.is/.
Athugasemdir
hið besta má Ásta, eitt langar mig að vita hér að ofantöldu er eitt atriði sem vekur forvitni mína: Í störfum sínum hefur Ásta Möller lagt sérstaklega áherslu á heilbrigðismál, málefni aldraðra og önnur velferðarmál fjölskyldunnar, auk lífeyrismála og málefna launamanna.
hver er staðan á lífeyrismálum alþingismanna og ráðherra ? nú eru liðnir meira en 18 mánuðir síðan lagt var af stað af ykkar hálfu að klára þennann pakka en ekker hefur gerst ? hvers má vænta ?
Jón Snæbjörnsson, 8.2.2009 kl. 21:47
Sæll Jón. Breytingar voru gerða á lífeyrismálum alþingismanna og ráðherra fyrir jól, eins og þú getur séð á þessari slóð:
http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=136&mnr=246
Ásta Möller (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 09:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.